Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
   lau 14. júní 2025 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Getum spilað eins með og án Messi"
Mynd: EPA
Lionel Messi, einn besti leikmaður sögunnar, er eins og gefur að skilja mjög mikilvægur öllum liðum sem hann spilar fyrir.

Lionel Scaloni, landsliðsþjálfari Argentínu, segir að landsliðið þurfi ekki að reiða eins mikið á Messi og áður.

„Liðið er núna á þeim stað að það getur spilað eins með og án Messi, sem hefur verið flókið þar sem við þurftum að gera breytingar. Nú þurfum við þess ekki og liðið virkar eins," sagði Scaloni.

Liðið vann Úrúgvæ og Brasilíu án hans í mars þar sem hann var meiddur en liðið tryggði sér sæti á HM 2026 þá. Liðið vann Síle 1-0 í síðustu viku og Messi kom inn á sem varamaður.
Athugasemdir