Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
banner
   sun 15. júní 2025 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Andrea Rán meistari með Tampa Bay - Sigur hjá Degi Dan
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir varð í nótt bandarískur meistari með Tampa Bay Sun eftir sigur á Fort Lauderdale í úrslitum.

Markalaust var eftir 90 mínútur en sigurmarkið kom eftir ellefu mínútur í framlengingunni. Andrea Rán kom ekkert við sögu í úrslitaleiknum. Thelma Lóa Hermannsdóttir er leikmaður Fort Lauderdale en hún sat einnig á bekknum.

Andrea lék 15 leiki með Tampa Bay á tímabilinu en Thelma lék átta með Fort Lauderdale.

Dagur Dan Þórhallsson spilaði 72 mínútur þegar Orlando City vann Colorado Rapids 1-0 í nótt. Með þessum sigri batt Orlando enda á tveggja leikja taphrinu. Liðið er í 5. sæti Austurdeildarinnar með 30 stig eftir 18 umferðir.
Athugasemdir
banner
banner