Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
banner
   sun 15. júní 2025 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gæti spilað sinn fyrsta leik í 14 mánuði - Styttist í Júlíus Mar
Hrafn Tómasson sleit krossband gegn Fylki í 1. umferð Íslandsmótsins í fyrra.
Hrafn Tómasson sleit krossband gegn Fylki í 1. umferð Íslandsmótsins í fyrra.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Júlíus Mar er á sínu fyrsta tímabili í efstu deild, en er þrátt fyrir það lykilmaður í liði KR.
Júlíus Mar er á sínu fyrsta tímabili í efstu deild, en er þrátt fyrir það lykilmaður í liði KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í leiknum á móti Vestra var KR án margra leikmanna. Sjö leikmenn sem hafa spilað í sumar voru ekki í leikmannahópnum.

Það voru þeir Júlíus Mar Júlíusson, Luke Rae, Birgir Steinn Styrmisson, Alexander Rafn Pálmason, Alexander Helgi Sigurðarson, Sigurður Breki Kárason og Kristófer Orri Pétursson voru ekki í hópnum. Stefán Árni Geirsson meiddist í vetur og verður frá í lengri tíma, en jákvæðar fréttir eru af Hrafni Tómassyni sem er að komast af stað eftir krossbandsslit.

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var spurður út í stöðuna á leikmannahópnum fyrir komandi leik gegn Víkingi. Sá leikur hefst klukkan 19:15 annað kvöld og fer fram á Víkingsvelli.

„Luke er ekki að koma til baka í næstu leikjum, en Júlíus gæti komið fyrr til baka en maður hélt fyrir tveimur vikum. Hann hefur verið á góðu skriði að undanförnu, vonandi styttist í hann. Biggi og Luke verða líklega báðir frá fram í miðjan júlí."

„Alexander Rafn er byrjaður að æfa, verður vonandi í hópnum. Siggi Breki er byrjaður að hjóla og gera styrktaræfingar, beinið grær vel og verður vonandi klár um miðjan júlí. Hann meiddist 18. maí, þetta eru yfirleitt 6-8 vikur þangað til menn eru komnir á fullt eftir viðbeinsbrot, það virðist vera þannig hjá honum."


Alexander Rafn, Alexander Helgi og Kristófer Orri eru heilir og gætu komið inn á bekkinn gegn Víkingi. KR verður án Arons Þórðar Albertssonar sem tekur út leikbann í leiknum.

„Það er gott að endurheimta þá þrjá upp á breiddina í hópnum, engin spurning."

Hvernig er með Hrafn, Krumma, er hann kominn nær þessu?

„Krummi er klár, verður í hóp á móti Víkingi. Hann var kominn langleiðina að því að verða leikfær í síðasta mánuði. Svo tognaði hann aðeins í liðbandi í hnénu og seinkaði aðeins við það. Hann lítur rosalega vel og verður að öllu óbreyttu í hóp á mánudaginn," sagði Óskar við Fótbolta.net á föstudagskvöldið.

Hrafn er 21 árs miðjumaður sem sleit krossband í upphafi Íslandsmótsins í fyrra. Hann var í hóp í einum leik í apríl en kom þá ekkert til sögu, en gæti á morgun spilað sinn fyrsta leik í 14 mánuði.
Athugasemdir
banner
banner