Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
   sun 15. júní 2025 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HM félagsliða: Markmennirnir fóru hamförum
Mynd: EPA
Al Ahly Cairo 0 - 0 Inter Miami FC
0-0 Mahmoud Trezeguet ('43 , Misnotað víti)

Opnunarleikurinn á HM félagsliða fór fram í nótt þar sem bandaríska liðið Inter Miami mætti Al Ahly frá Egyptalandi.

Inter Miami með leikmenn á borð við Luis Suarez og Lionel Messi innanborðs voru í miklum vandræðum í fyrri hálfleik og Al Ahly var mun betri aðilinn.

Oscar Ustari, markvörður Inter Miami, var frábær í fyrri hálfleik en hann varði m.a. vítaspyrnu undir lokin seem Mahmoud Trezeguet, fyrrum framherji Aston Villa, tók.

Inter var betri aðilinn í seinni hálfleik og í uppbótatíma átti Lionel Messi fyrirgjöf en boltinn fór á markið, Mohamed El Shenawy, markvörður Al Ahly náði að blaka boltanum yfir og Inter fékk hornspyrnu.

Maximiliano Falcón náði skalla á markið á lokasekúndum leiksins en El Shenawy fékk boltann í höfuðið og hann fór yfir.
Athugasemdir
banner