Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
   sun 15. júní 2025 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Schick eftirsóttur á Englandi og Ítalíu
Mynd: EPA
Tékkneski sóknarmaðurinn Patrik Schick er eftirsóttur í sumar og hefur vakið athygli frá úrvalsdeildarfélögum.

Sky í Þýskalandi greinir frá því að ýmis félög úr ensku deildinni og Serie A á Ítalíu hafi sett sig í samband við Schick. FC Bayern hefur einnig verið nefnt til sögunnar.

Óljóst er hvort leikmaðurinn ætli að skipta um félag þar sem hann er sagður vera ánægður með ráðninguna á Erik ten Hag sem þjálfara. Ten Hag vill halda Schick sem skoraði 21 mark í 31 deildarleik á síðustu leiktíð.

Schick er þó aðeins með tvö ár eftir af samningi sínum við Leverkusen og eru miklar líkur á því að félagið semji annað hvort við leikmanninn í sumar eða selji hann.

Félög frá Sádi-Arabíu sýndu honum áhuga á dögunum en Schick vill ekki fara þangað. Hann vill spila í hæsta gæðaflokki.

Schick er 29 ára gamall og hefur skorað 24 mörk í 46 landsleikjum með Tékklandi. Hann var hjá RB Leipzig og Roma áður en hann gekk til liðs við Leverkusen.
Athugasemdir
banner