Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
   lau 14. júní 2025 17:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gent tilbúið að selja Andra Lucas
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenski landsliðsframherjinn Andri Lucas Guðjohnsen hefur ekki tekist að sýna sitt rétta andlit hjá Gent í Belgíu.

Andri átt gott tímabil á láni hjá Lyngby frá Norrköping í fyrra þar sem hann skoraði 15 mörk í 33 leikjum í efstu deild í Danmörku.

Í kjölfarið var hann seldur til Belgíu en hann hefur aðeins skorað fimm mörk í 46 leikjum fyrir Gent.

Belgíski fjölmiðillinn VoetbalPrimeur greinir frá því að Gent sé tilbúið að selja framherjann í sumar.


Athugasemdir
banner