Léttir 2 - 3 Álafoss
1-0 Kristján Ólafsson ('13 )
1-1 Daníel Darri Gunnarsson ('14 )
1-2 Daníel Ingi Jónsson ('23 )
1-3 Alexander Aron Davorsson ('35 )
2-3 Kristján Ólafsson ('55 )
1-0 Kristján Ólafsson ('13 )
1-1 Daníel Darri Gunnarsson ('14 )
1-2 Daníel Ingi Jónsson ('23 )
1-3 Alexander Aron Davorsson ('35 )
2-3 Kristján Ólafsson ('55 )
Álafoss er á góðu skriði á toppi A-riðilsins í 5. deild eftir góðan sigur á útivelli í gær.
Álafoss heimsótti Létti í toppbaráttunni og skoraði Kristján Ólafsson fyrsta mark leiksins fyrir heimamenn strax á 13. mínútu. Það var um mínúta liðin þegar Daníel Darri Gunnarsson svaraði með jöfnunarmarki fyrir gestina.
Daníel Ingi Jónsson kom Álafossi svo yfir áður en Alexander Aron Davorsson, fyrrum þjálfari kvennaliðs Aftureldingar, skoraði þriðja mark gestanna.
Staðan var 1-3 í leikhlé og minnkaði Kristján muninn aftur niður í eitt mark snemma í síðari hálfleik.
Heimamenn í liði Léttis komust ekki nær svo lokatölur urðu 2-3. Tvenna frá Kristjáni nægði ekki til gegn toppliði riðilsins.
Álafoss er með 15 stig eftir 5 umferðir, 8 stigum fyrir ofan næstu lið.
Léttir Dagur Karl Jónsson (m), Kristján Jóhannesson, Torfi Már Markússon, Víkingur Viðar Björnsson (71'), Snorri Gunnarsson, Árni Benediktsson, Bjarni Leó Sigurðsson, Sindri Freyr Sverrisson, Ágúst Freyr Axelsson, Sebastían Daníel Elvarsson (52'), Kristján Ólafsson
Varamenn Helgi Freyr Þorsteinsson, Mikael Máni Hermannsson (52'), Róbert Ingi Hrólfsson (71'), Przemyslaw Lewandowski, Ísar Snær Sigursteinsson, Nischal Smári Gurung
Álafoss Ingvar Þór Kale (m), Alexander Aron Davorsson, Szymon Maszota, Andri Hrafn Sigurðsson, Kári Jökull Ingvarsson, Daníel Ingi Jónsson (78'), Patrekur Orri Guðjónsson, Guðjón Breki Guðmundsson, Breki Freyr Gíslason (61'), Daníel Darri Gunnarsson, Valgeir Viðar Jakobsson
Varamenn Davíð Leví Magnússon (78), Birgir Örn Birgisson, Matthías Lipka Þormarsson, Gabríel Snær Pétursson, Oliver Orri Gunnarsson (61), Bjarki Sigfússon, Mohssen Nezzar (m)
5. deild karla - A-riðill
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Álafoss | 5 | 5 | 0 | 0 | 20 - 8 | +12 | 15 |
2. Smári | 5 | 2 | 1 | 2 | 24 - 9 | +15 | 7 |
3. Léttir | 5 | 2 | 1 | 2 | 18 - 9 | +9 | 7 |
4. KM | 4 | 2 | 1 | 1 | 7 - 6 | +1 | 7 |
5. Skallagrímur | 4 | 2 | 1 | 1 | 7 - 6 | +1 | 7 |
6. Uppsveitir | 5 | 2 | 0 | 3 | 3 - 11 | -8 | 6 |
7. Hörður Í. | 5 | 1 | 2 | 2 | 13 - 8 | +5 | 5 |
8. Reynir H | 5 | 0 | 0 | 5 | 6 - 41 | -35 | 0 |
Athugasemdir