Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
   lau 14. júní 2025 20:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gerir nýjan langtíma samning við Real Madrid
Mynd: EPA
Raul Asencio, varnarmaður Real Madrid, hefur skrifað undir nýjan samning við Real Madrid en The Athletic greinir frá þessu.

Real og Asencio komust að samkomulagi í mars um að framlengja samninginn til 2029 en viðræður hófust að nýju í kjölfarið og Asencio hefur nú samþykkt nýjan samning sem gildir till ársins 2031.

Asencio er 22 ára gamall miðvörður en hann fékk tækifæri í liði Real Madrid á síðustu leiktíð vegna meiðslavandræða í hópnum. Hann lék 42 leiki í ölllum keppnum.

The Athletic segir að hann hafi fengið launahækkun og þá er eins milljarð evra kaupákvæði í samninginum.
Athugasemdir