Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
   sun 15. júní 2025 10:58
Brynjar Ingi Erluson
Markvörður Liverpool á leið til Ajax
Mynd: EPA
Tékkneski markvörðurinn Vitezslav Jaros er á leið til Ajax á láni frá Liverpool. Hollenski miðillinn Telegraaf greinir frá.

Miklar hrókeringar eru í gangi í markmannamálum Liverpool en Jaros verður annar markvörðurinn til að yfirgefa Liverpool í sumarglugganum á eftir Caoimhin Kelleher.

Jaros er 23 ára gamall og verið á mála hjá Liverpool frá 2017, en hann kom frá tékkneska stórveldinu Spörtu Prag.

Á tíma hans hjá Liverpool hefur hann fjórum sinnum farið á láni frá félaginu, en á síðasta tímabili fékk hann loks tækifærið með aðalliðinu er hann kom inn af bekknum í 1-0 sigri á Crystal Palace.

Vegna meiðsla Alisson byrjaði Jaros næsta leik á eftir í 3-2 sigri á Brighton og fékk mikið lof fyrir frammistöðuna.

Hann fær nú tækifæri til að eigna sér markvarðarstöðuna hjá hollenska stórliðinu Ajax, en hann er á leið til félagsins á láni út tímabilið.

Samkvæmt Telegraaf fer hann í læknisskoðun á þriðjudag eða miðvikudag áður en hann skrifar undir samninginn.

John Heitinga, fyrrum aðstoðarmaður Arne Slot hjá Liverpool, var ráðinn nýr þjálfari Ajax á dögunum og er greint frá því að hann hafi sérstaklega beðið um að fá Jaros með sér.
Athugasemdir
banner
banner