
Íslendingalið Bröndby rétt missti af Evrópusæti fyrir næsta tímabil þrátt fyrir að hafa unnið OB, 1-0, í lokaumferð dönsku úrvalsdeildarinnar í dag.
Hafrún Rakel Halldórsdóttir og Ingibjörg Sigurðardóttir byrjuðu hjá Bröndy í leiknum í dag, en liðið þurfti að vinna og treysta á að HB Köge myndi tapa fyrir AGF.
Bröndby gerði sitt en Köge vann á meðan 2-1 sigur á AGF og því ljóst að Bröndy fer ekki í Evrópubikarinn í haust.
Liðið hafnaði í 4. sæti deildarinnar með 38 stig, jafnmörg og Köge, sem var hins vegar með betri markatölu.
Íris Ómarsdóttir lagði upp sigurmark Stabæk í 1-0 sigrinum á Kolbotn í norsku úrvalsdeildinni.
Hún hefur verið frábær á tímabilinu og komið að 7 mörkum í 13 leikjum sínum í deildinni. Stabæk er í 5. sæti með 16 stig, fimmtán stigum frá toppnum.
Athugasemdir