Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
   sun 15. júní 2025 22:34
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Sörloth með klúður mótsins
Mynd: EPA
Alexander Sörloth kom inn af bekknum á 70. mínútu í 4-0 tapi Atlético Madrid gegn stórveldi PSG á HM félagsliða í dag.

Staðan var 2-0 þegar Sörloth kom inn af bekknum og var liðsfélagi hans Clement Lenglet rekinn af velli skömmu síðar. Tíu leikmönnum Atlético tókst þó að búa til dauðafæri en Sörloth klúðraði því með ótrúlegum hætti.

Marcos Llorente gerði vel að skapa sannkallað dauðafæri fyrir Sörloth með fastri og lágri fyrirgjöf, en norski framherjinn hitti boltann ekki nægilega vel og þrumaði honum yfir þrátt fyrir að hafa aðeins verið um þrjá metra frá opnu marki.

Mark þarna hefði komið Atlético aftur inn í leikinn en þess í stað skoraði PSG tvö mörk til viðbótar á lokakaflanum til að innsigla þægilegan sigur.

Sjáðu ótrúlegt klúður Alexander Sörloth
Athugasemdir
banner