Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
   sun 15. júní 2025 10:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fá frí í vinnunni til að taka þátt á HM félagsliða
Mynd: EPA
Auckland City frá Nýja-Sjálandi hefur leik á HM félagsliða í Bandaríkjunum í dag þegar liðið mætir stórliði Bayern klukkan 16.

Auckland er núverandi meistari og sigursælasta liðið í Meistaradeild Eyjaálfunnar með 13 titla.

Það er áhugavert að liðið er hálfatvinnumanna lið. Leikmenn liðsins eru með vinnu fyrir utan fótboltann. Leikmennirnir fengu því frí frá daglegu vinnunni til að ferðast með liðinu til Bandaríkjanna til að taka þátt á HM.

„Leikmenn þurftu að fá frí í vinnunni. Reyndar náðu sumir ekki að fá frí fyrir Meistaradeildina og HM félagsliða," sagði Paul Posa þjálfari liðsins.

Auckland er með Bayern, Benfica og Boca Juniors í C-riðli.
Athugasemdir