PSG 4 - 0 Atltico Madrid
1-0 Fabian Ruiz ('19)
2-0 Vitinha ('45+1)
3-0 Senny Mayulu ('87)
4-0 Lee Kang-in ('97, víti)
Rautt spjald: Clement Lenglet, Atlético ('78)
1-0 Fabian Ruiz ('19)
2-0 Vitinha ('45+1)
3-0 Senny Mayulu ('87)
4-0 Lee Kang-in ('97, víti)
Rautt spjald: Clement Lenglet, Atlético ('78)
Evrópumeistarar Paris Saint-Germain mættu Atlético Madrid í fyrstu umferð í riðlakeppni HM félagsliða og áttu flottan leik.
Fabián Ruiz tók forystuna með hnitmiðuðu skoti á 19. mínútur áður en Vitinha tvöfaldaði forystuna eftir alltof auðvelda skyndisókn í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Khvicha Kvaratskhelia lagði bæði mörkin upp.
PSG var sterkari aðilinn en Atlético Madrid fékk sín færi í leiknum. Verkefni Madrídinga varð þó erfiðara eftir að Clement Lenglet var sendur af velli með seinna gula spjaldið sitt.
Julián Alvarez kom boltanum í netið en ekki dæmt mark vegna brots í aðdragandanum. Alexander Sörloth komst svo í algjört dauðafæri en skaut yfir þrátt fyrir að vera aðeins örfáa metra frá markinu.
Staðan hélst 2-0 allt þar til á lokakaflanum, þegar Senny Mayulu innsiglaði sigurinn á 87. mínútu áður en Lee Kang-in setti fjórða markið úr vítaspyrnu í uppbótartíma. Lokatölur 4-0.
PSG og Atlético eru í riðli með Botafogo og Seattle Sounders á HM.
Athugasemdir