Pervis Estupinan, leikmaður Brighton á Englandi, hefur staðfest að hann verði ekki áfram hjá félaginu á næstu leiktíð.
Estupinan er 27 ára gamall vinstri bakvörður sem hefur gegnt lykilhlutverki í liði Brighton síðustu þrjú ár.
Á þessum þremur árum hefur hann spilað 114 leiki og komið að 19 mörkum.
Ekvadorinn hefur komið víða við á ferlinum og er hann nú tilbúinn að taka næsta skref, en hann staðfesti í viðtali við StudioFútbol að hann verði ekki áfram hjá Brighton á næstu leiktíð.
„Ég vil taka næsta skref ferilsins og félagið hefur sýnt því skilning,“ sagði Estupinan.
Estupinan, sem hjálpaði Ekvador að tryggja HM-sætið á dögunum, hefur verið orðaður við AC Milan, Chelsea og Manchester United síðustu vikur.
Athugasemdir