Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
   sun 15. júní 2025 20:20
Ívan Guðjón Baldursson
„Dembélé á skilið að vinna Ballon d'Or"
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Luis Enrique þjálfari Paris Saint-Germain telur að sóknarleikmaðurinn Ousmane Dembélé eigi skilið að hreppa Ballon d'Or verðlaunin í ár.

Dembélé hefur verið algjör lykilmaður í ógnarsterku liði PSG sem vann Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn í sögu sinni um síðustu mánaðamót.

Dembélé er 28 ára gamall og átti magnað tímabil með PSG, þar sem hann kom að 48 mörkum í 49 leikjum er félagið vann alla mögulega titla.

„Mér gæti ekki verið meira sama um einstaklingsverðlaun en mér finnst samt eins og Ousmane Dembélé eigi skilið að fá Ballon d'Or. Það leikur enginn vafi á því," sagði Enrique meðal annars fyrir leik PSG gegn Atlético Madrid í HM félagsliða.

„Við erum mjög ánægðir með árangurinn en það er mikilvægt að halda áfram. Við erum að undirbúa okkur vel fyrir þessa nýju keppni og viljum gera okkar besta í sumar."

   15.06.2025 12:00
Fagmannlegri og þroskaðri en áður - „Spilaði bara NBA 2K og horfði á sjónvarpið“

Athugasemdir