Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
   lau 14. júní 2025 16:30
Brynjar Ingi Erluson
Man City ekki fengið tilboð í Grealish
Jack Grealish
Jack Grealish
Mynd: EPA
Manchester City hefur ekki fengið formlegt tilboð í enska vængmanninn Jack Grealish.

Framtíð Grealish er í óvissu eftir að Pep Guardiola, stjóri félagsins, skildi hann eftir utan hóps fyrir HM félagsliða sem hefst um helgina.

Grealish er dýrasti leikmaður í sögu Manchester City, en félagið keypti hann frá Aston Villa fyrir 100 milljónir punda árið 2021.

BBC segir að Man City sé opið fyrir tilboðum í Grealish, en ekki eitt einasta tilboð hefur borist til þessa.

Everton og Newcastle United hafa sýnt honum áhuga, en ekki lagt fram formlegt tilboð í hann.

Grealish. sem er 29 ára gamall, þénar um það bil 300 þúsund pund í vikulaun og virðist það fæla félög frá því að festa kaup á honum, en það kemur vel til greina að lána hann út svo lengi sem að það félag sem fær hann greiðir hluta af launum hans.

Englendingurinn spilaði stóra rullu þegar Man City vann þrennuna fyrir tveimur árum en ekki tekist að láta kné fylgja kviði og mátt þola mikla bekkjarsetu undanfarið.
Athugasemdir
banner
banner