Nú er í gangi leikur Fram og FH í elleftu umferð Bestu deildarinnar en Fram tók forystuna strax á sjöttu mínútu þegar Vuk Oskar Dimitrijevic skoraði. Vuk er uppalinn Leiknismaður en lék með FH áður en hann gekk í raðir Fram.
„Vakti það athygli einhverra að hann fagnaði ekki markinu gegn sínum gömlu félögum," skrifaði Gunnar Bjartur Huginsson, fréttamaður Fótbolta.net, sem textalýsir leiknum frá Úlfarsárdal.
Þetta var sjötta mark Vuk í deildinni og fjórði leikurinn í röð sem hann skorar í.

Lestu um leikinn: Fram 2 - 0 FH
Annars er áhugavert að Fred Saraiva er kominn aftur í leikmannahóp Fram eftir að hafa verið frá vegna meiðsla. Hann lék síðast 10. maí.
„Það er gríðarlega mikilvægt að fá hann aftur inn í hópinn. Hann hefur misst af síðustu leikjum og það er skarð fyrir skildi. Hann er frábær leikmaður. Hann er tilbúinn í einhverjar mínútur hér í dag en ekkert alltof margar. Hann er búinn að taka tvær eða þrjár æfingar og við þurfum að fara varlega af stað með hann," sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, í viðtali við Sýn fyrir leikinn.
Athugasemdir