Ange Postecoglou, fyrrum stjóri Tottenham, gæti verið að landa nýju starfi aðeins nokkrum dögum eftir að hafa verið látinn frá frá enska félaginu.
Tottenham rak Postecoglou í byrjun mánaðar þrátt fyrir að hann hafi unnið Evrópudeildina og komið liðinu í Meistaradeildina.
Ákvörðun enska félagsins kom leikmönnum og Postecoglou í opna skjöldu, sem hafði landað fyrsta titlinum í 17 ár.
David Ornstein hjá Athletic segir að ástralski þjálfarinn gæti verið á leið í nýtt starf á næstu vikum, en sádi-arabíska félagið Al Ahli hefur sett sig í samband við hann.
Matthias Jaissle gæti verið að hætta með liðið og er Postecoglou með efstu mönnum á blaði til að taka við.
Al Ahli er einnig með Xabi á listanum, en hann hefur verið án starfs síðan Barcelona lét hann fara fyrir ári síðan.
Athugasemdir