Ítalinn Luciano Spalletti var rekinn sem landsliðsþjálfari Ítalíu á dögunum en hann gæti verið búinn að finna sér nýtt starf strax.
Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að Spalletti hafi fengið símtal frá sádí arabíska félaginu Al-Nassr sama dag og hann var rekinn um síðustu helgi.
Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að Spalletti hafi fengið símtal frá sádí arabíska félaginu Al-Nassr sama dag og hann var rekinn um síðustu helgi.
Al Nassr býður honum tveggja ára samning og 18 milljónir evra í árslaun.
Landi hans, Stefano Pioli, er stjóri Al-Nassr en hann hefur verið orðaður við Fiorentina. Hann er einnig orðaður við ítalska landsliðið en útlit er fyrir að Gennaro Gattuso taki við af Spalletti.
Athugasemdir