Palmeiras 0 - 0 Porto
Palmeiras og Porto áttust við í fyrstu umferð HM félagsliða í kvöld og úr varð spennandi slagur þar sem Brasilíumennirnir voru sterkari aðilinn.
Palmeiras hélt boltanum betur og skapaði sér mun betri færi en tókst þó aldrei að skora þrátt fyrir góðar tilraunir.
Claudio Ramos markvörður Porto var einn af bestu leikmönnum vallarins þar sem hann bjargaði sínum mönnum trekk í trekk með góðum markvörslum. Þá bjargaði Porto einnig á marklínunni og urðu lokatölur 0-0.
Liðin eru með Al-Ahly og Inter Miami í riðli en þau skildu einnig jöfn 0-0 í fyrstu umferð. Öll liðin eru því jöfn á stigum og markatölu eftir fyrstu umferðina.
Hinn bráðefnilegi Estevao var í byrjunarliðinu og skapaði gríðarlega mikið af hættulegum stöðum en tókst ekki að breyta úrslitum leiksins. Hann var valinn sem besti leikmaður vallarins en hann er að ganga í raðir Chelsea eftir mótið.
Porto spilar næst við Lionel Messi og félaga í liði Inter Miami á meðan Palmeiras mætir egypsku risunum í Al-Ahly.
Athugasemdir