Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
banner
   sun 15. júní 2025 12:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Óskar Hrafn: Skal vera heiðarlegur með að ég hugsaði til Víkinga á þeim dögum
'Ég skal vera heiðarlegur með það að ég hugsaði einu sinni, jafnvel tvisvar, eða kannski oftar til Víkinga á þessum fjórum dögum'
'Ég skal vera heiðarlegur með það að ég hugsaði einu sinni, jafnvel tvisvar, eða kannski oftar til Víkinga á þessum fjórum dögum'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR er í sjöunda sæti með þrettán stig eftir tíu leiki.
KR er í sjöunda sæti með þrettán stig eftir tíu leiki.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur er á toppi deildarinnar með 20 stig.
Víkingur er á toppi deildarinnar með 20 stig.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sölvi Geir tók við Víkingi í janúar.
Sölvi Geir tók við Víkingi í janúar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óskar leggur upp með að liðið sitt spili sóknarbolta og það hefur tekist vel til.
Óskar leggur upp með að liðið sitt spili sóknarbolta og það hefur tekist vel til.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR hefur skorað 28 mörk, það mesta í deildinni, en fengið á sig 23 sem er það næstmesta í deildinni.
KR hefur skorað 28 mörk, það mesta í deildinni, en fengið á sig 23 sem er það næstmesta í deildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Annað kvöld tekur Víkingur á móti KR í lokaleik elleftu umferðar. Besta deildin er farin aftur á flug eftir landsleikjahlé og topplið Víkings mætir á morgun sókndjarfasta liði deildarinnar.

Fótbolti.net ræddi við Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfara KR, í aðdraganda leiksins.

„Tilfinningin er frábær, það er mikil tilhlökkun. Eins gaman og það er að spila leiki þá held ég að þetta hafi verið kærkomið frí fyrir alla sem koma að Bestu deildinni. Ég held að menn séu búnir að hlaða batteríin vel og séu klárir í slaginn," segir Óskar.

„Ég held það sé ekki auðvelt að kúpla sig alveg út, við tókum fjögurra daga frí um síðustu helgi. Ég vona að leikmennirnir hafa náð að hreinsa hausinn, en ég skal vera heiðarlegur með það að ég hugsaði einu sinni, jafnvel tvisvar, eða kannski oftar til Víkinga á þessum fjórum dögum. Það er bara eins og það er. En það er oft ágætt að fá smá tíma til að æfa og vera ekki upptekinn af leik eftir þrjá daga, það er dýrmætt líka og fínt í bland. Ég held að menn kúpli sig ekkert almennilega út fyrr en eftir tímabilið."

Blendnar tilfinningar
KR hefur spilað tíu deildarleiki, hvernig horfir Óskar til baka?

„Það eru blendnar tilfinningar sem bærast með manni þegar maður horfir á fyrstu tíu umferðirnar. Að mörgu leyti hefur það sem við lögðum upp með, sem var að spila sóknarfótbolta og skemmtilegan fótbolta, gengið vel. Við höfum auðvitað fengið á okkur alltof mörg mörk og höfum gert okkur lífið, oft á tíðum, mjög erfitt. Það er að hluta til leikstíllinn og að hluta til erfiðleikar með að skipta úr sóknarsinnuðu hugarfari yfir í varnarsinnað hugarfar."

„Það hefur heldur ekki hjálpað okkur að við höfum lent í mjög miklum hrakningum meiðslalega séð. Þó að manni finnist alltaf öflugir menn koma inn, og margir geti leyst hlutverkin sín vel af hendi, þá er það þannig að við margar breytingar milli leikja þá týnist takturinn. Þetta er eins og hljómsveit sem er með nýjan bassaleikara og nýjan trommuleikara á hverjum einustu tónleikum, það tekur tíma að stilla strengina og ná takti."

„Svekktur er kannski ekki rétta orðið, en maður hefði verið til í að ná nokkrum leikjum með sama byrjunarlið, fá stöðugleika og takt. En að móti kemur höfum við spilað á mörgum mönnum, margir fengið dýrmæta reynslu. Það er dýrmætt þegar þú horfir til lengri tíma. En auðvitað er það þannig, þó að maður sé ekki að hugsa um stig alla daga, að við myndum vilja vera með fleiri stig heldur en við erum með. Það er klárt mál, og ættum að vera með fleiri stig heldur en við erum með. En það er samt þannig að ef þú skapar þér fullt af færum, nýtir þau ekki, og gefur svo auðveld mörk, þá er oft erfitt að vinna fótboltaleiki."

„Á okkar bestu tímum finnst mér við eiga í fullu tré við öll lið. Þegar slæmu kaflarnir okkar koma, þá værum við í vandræðum á móti liðum sem eru í neðri deildum heldur en við erum. Það hafa verið ákveðnar öfgar í þessu, höfum átt kafla sem hafa verið frábærir, og svo höfum við átt mjög lélega kafla þar sem okkur hefur verið refsað grimmilega, t.d. á móti Stjörnunni; örstuttir kaflar þar sem ekkert hefur gengið upp. Lærdómurinn er af því er að það er ekkert í boði í þessari deild, það verður að vera kveikt á þér í 90 mínútur."

„Þegar maður horfir á þetta, þá hefur það sem við lögðum upp með gengið að mörgu leyti. Við fórum í að yngja liðið, vera með fleiri uppalda KR-inga og það hefur gengið eftir. Við fórum í að reyna vera skemmtilegir, djarfir og sækja á mörgum mönnum. Það hefur gengið eftir. Svo eigum við ennþá eftir að finna meira jafnvægi í því hversu margir eru að sækja og hversu margir eru að verjast."


Dýrmætt til lengri tíma litið en væri til í taktinn
Þú nefnir þessa breidd sem kannski myndast við að fleiri séu að fá mínúturnar, til lengri tíma litið getur það verið dýrmætt eins og þú segir.

„Það er mjög auðvelt að horfa í það. Það eru ungir menn búnir að fá kannski fleiri mínútur heldur en þeir hefðu fengið ef að allir hefðu verið heilir allan tímann. Auðvitað er það dýrmætt þegar til lengri tíma er litið, klárt mál. En samt sem áður saknar maður þess að geta ekki verið í þeirri stöðu að vera ekki í þeirri stöðu að geta tengt saman leiki með sama liðinu. Það er það sem býr til stöðugleika og takt."

Ætla hundelta Víkinga út um allan völl
Það er leikur gegn Víkingi, gegn toppliðinu, má búast við mikið breyttu KR uppleggi frá leiknum gegn Vestra í síðustu umferð?

„Víkingur er auðvitað með gríðarlega öflugt lið, en við erum svo sem ekkert að fara breyta okkur þannig lagað. Víkingur mun ekki fara jafn langt niður á völlinn og Vestri varnarlega, ég held það sé alveg ljóst. Víkingar eru góðir að halda boltanum þegar þeir geta fengið að stilla sér upp. Grunnstefið varnarlega er að fara agressíft á þá og hundelta þá út um allan völl. Það mun ekkert breytast, sama hvort það sé Víkingur, Vestri, Valur eða Breiðablik, eða eitthvað annað lið. Sóknarlega þurfum við að vera vandvirkir hvernig þeir verjast, hvar við eigum ekki að setja boltann. Víkingur verst öðruvísi heldur en lið eins og Vestri. En í grunninn viljum við stjórna leiknum með bolta og vera agressífir án hans, standa hátt með línuna og vera þéttir framarlega á vellinum, það verður alltaf okkar markmið."

Ekki tímabært að dæma breytinguna
Hvernig sérðu breytinguna á Víkingi á milli Arnars og Sölva?

„Það er erfitt að dæma um það núna, stutt liðið á mótið. Víkingur fékk ekkert, eða allavega skrítið, undirbúningstímabil. Það er mjög erfitt að meta breytinguna. Ég held það sé hollast fyrir alla að skoða það í haust. Þetta eru gæðaleikmenn sem eru rútíneraðir og kunna að vinna leiki, lið sem berum mikla virðingu fyrir en óttumst ekki. Ég held að Sölvi verði að fá aðeins lengri tíma svo einhver geti svarað þeirri spurningu, held það sé full snemmt að dæma núna," segir Óskar.

Leikurinn annað kvöld fer fram á Víkingsvelli og hefst 19:15.
Athugasemdir
banner
banner
banner