Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
   sun 15. júní 2025 18:32
Anton Freyr Jónsson
Óli Kristjáns: Ábyrgðin á mér og stelpunum
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Svekktur að tapa leiknum en hrós á Stjörnuliðið, þær spiluðu sterkan varnarleik, skoruðu mark snemma og fóru svo bara og vörðust. Ég ætla hvorki að falla í þá gryfju að segja að við höfum fengið á okkur skítamörk eða vera hissa á því að Stjarnan hafi varist vel." sagði Ólafur Kristjánsson þjálfari Þróttar eftir 2-0 tapið á Samsungvellinum í Garðabæ í Bestu deild kvenna. 


Lestu um leikinn: Stjarnan 2 -  0 Þróttur R.

„Það sem var að hjá okkur var það að við vorum ekki að ná að opna vörnina hjá þeim, við fórum lítið stykt út í breiddina og vorum ekki að vinna þær stöður sem við höfum verið að gera þannig það var svona kannski hjá okkur lykillinn að opna vörnina var ekki réttur og bara vel uppsetur leikur hjá Stjörnunni."

„Ég er ekki sáttur með hvernig við leystum stöðurnar á síðasta þriðjung, það vantaði djúp hlaup, það vantaði svona að ógna afturfyrir þær og liðið var svolítið statt."

„Það eru fullt af hlutum sem ég er ósáttur með en get andskotann ekki gert neitt í því núna, leikurinn er búin. Ábyrgðin liggur svolítið á mér og stelpnanna að leysa það inni á vellinum. Ég er ósáttur með sjálfan mig og niðurstöðuna."


Nánar var rætt við Ólaf Kristjánsson í viðtalinu hér að ofan.


Athugasemdir
banner