Spænski markvörðurinn David De Gea mun snúa aftur á Old Trafford í ágúst, tveimur árum eftir að hafa yfirgefið Manchester United.
De Gea yfirgaf United þegar samningur hans rann út árið 2023 og tók sér ársleyfi.
Hann nýtti tímann í að bæta leik sinn og samdi síðan við ítalska félagið Fiorentina fyrir síðustu leiktíð.
Spánverjinn var besti markvörður ítölsku deildarinnar á nýafstaðinni leiktíð og valinn í lið ársins, en hann mun nú snúa aftur á Old Trafford.
Fiorentina heimsækir Man Utd á Old Trafford þann 9. ágúst, sem verður síðasti æfingaleikur United-liðsins fyrir tímabilið.
De Gea hefur undanfarnar vikur verið orðaður við endurkomu til United. Félagið er óánægt með frammistöðu Andre Onana og gæti farið svo að hann verði seldur. Argentínumaðurinn Emiliano Martínez og Serbinn Vanja Milinkovic-Savic hafa einnig verið orðaðir við enska félagið.
Athugasemdir