Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
   lau 14. júní 2025 15:30
Brynjar Ingi Erluson
Segist ekki vita hvort hann verði áfram hjá Man Utd
Mynd: EPA
Kamerúnski markvörðurinn Andre Onana segist ekki vita hvað framtíðin ber í skauti sér, en hann gæti verið á útleið frá Manchester United aðeins tveimur árum eftir að hafa komið frá Inter.

Dvöl Onana hjá Man Utd hefur verið mikil vonbrigði og hann oft verið blóraböggull liðsins þegar illa gengur.

Enskir fjölmiðlar segja að Onana gæti mögulega verið á förum í sumar, en leikmaðurinn sjálfur segist ekkert vita.

„Mun ég fara? Ég veit það ekki, það kemur bara í ljós,“ sagði Onana við fjölmiðla í Kamerún.

Man Utd er í leit að öðrum markverði og hefur Emiliano Martínez hjá Aston Villa verið svona allra helst í umræðunni. Hann er sagður bíða eftir United.

David De Gea, sem varði mark United frá 2011 til 2023, hefur verið orðaður við endurkomu til félagsins, en frammistaða hans með ítalska liðinu Fiorentina á síðasta tímabili vakti mikla athygli og skilaði honum sæti í liði ársins í Seríu A.
Athugasemdir
banner
banner