Ítalska félagið AC Milan dreymir um að fá úrúgvæska framherjann Darwin Nunez frá Liverpool í sumar.
Fabrizio Romano hefur þegar fullyrt að Nunez verði seldur frá Liverpool en Atlético Madríd, Milan, Napoli og félög í Sádi-Arabíu eru áhugasöm.
Nunez hefur átt ágæt augnablik í treyjunni, en það hefur oft vantað upp á færanýtinguna og mun Liverpool þurfa að selja leikmenn til að styrkja hópinn frekar.
Gazzetta dello Sport segir það vera draum Milan að landa Nunez og sér félagið hann sem fullkomna 'níu' sem mun raða inn mörkum.
Talið er að Nunez sé að þéna um 4,7 milljónir evra í árslaun hjá Liverpool, eitthvað sem gæti reynst of dýr pakki fyrir bæði Milan og Napoli, en ekki endilega ómögulegur díll.
Nunez er 25 ára gamall og skorað 40 mörk í 143 leikjum sínum með Liverpool síðan hann kom frá Benfica fyrir um það bil 85 milljónir punda árið 2022.
Athugasemdir