Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
   lau 14. júní 2025 21:13
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta deildin: Rautt spjald í sigri Stjörnunnar á Val
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan 3 - 2 Valur
1-0 Jóhann Árni Gunnarsson ('17 )
1-1 Patrick Pedersen ('26 )
2-1 Emil Atlason ('62 )
3-1 Guðmundur Baldvin Nökkvason ('68 )
3-2 Patrick Pedersen ('77 )
Rautt spjald: Bjarni Mark Antonsson, Valur ('78) Lestu um leikinn

Stjarnan vann frábæran sigur á Val í elleftu umferð Bestu deildarinnar í kvöld en leikurinn fór fram á Samsungvellinum í Garðabæ.

Örvar Eggertsson komst einn í gegn snemma leiks eftir vandræðagang Valsmanna en Frederik Schram náði að loka á hann. Jóhann Árni Gunnarsson náði forystunni fyrir Stjörnuna með góðu skoti rétt fyrir utan teiginn.

Stuttu síðar jafnaði markavélin Patrick Pedersen metin fyrir Val. Emil Atlason endurheimti forystuna fyrir Stjörnuna eftir sendingu frá Jóhanni Árna.

Það leið svo ekki á löngu þangað til Guðmundur Baldvin Nökkvason kom Stjörnunni í 3-1 eftir fyrirgjöf frá Þorra Mar Þórissyni. Valsmenn gáfust hins vegar ekki upp og Patrick bætti öðru marki sínu og þriðja marki Vals við.

Strax í kjölfarið var Bjarni Mark Antonsson hins vegar rekinn í sturtu þar sem hann braut á Örvari Eggertssyni sem var að sleppa einn í gegn.

Mörkin urðu ekki fleiri og sigur Stjörnunnar er því staðreynd. Stjarnan er í 4. sæti með 17 stig, stigi á eftir Val sem er í 3. sæti.
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 10 6 2 2 19 - 11 +8 20
2.    Breiðablik 10 6 1 3 17 - 16 +1 19
3.    Valur 11 5 3 3 24 - 16 +8 18
4.    Stjarnan 11 5 2 4 20 - 20 0 17
5.    Vestri 10 5 1 4 12 - 7 +5 16
6.    ÍBV 10 4 2 4 12 - 15 -3 14
7.    KR 10 3 4 3 28 - 23 +5 13
8.    Fram 10 4 0 6 16 - 17 -1 12
9.    KA 10 3 3 4 10 - 17 -7 12
10.    FH 10 3 2 5 15 - 14 +1 11
11.    Afturelding 10 3 2 5 8 - 13 -5 11
12.    ÍA 10 3 0 7 12 - 24 -12 9
Athugasemdir
banner