Rayan Cherki, nýr leikmaður Man City, getur ekki beðið eftir því að mæta Man Utd til að hefna síni á liðinu.
Cherki gekk til liðs við City frá Lyon en Man Utd sló franska liðið úr leik í Evrópudeildinni á síðustu leiktíð. Staðan var jöfn eftir 90 mínútur í seinni leiknum og framlengja þurfti því leikinn.
Cherki gekk til liðs við City frá Lyon en Man Utd sló franska liðið úr leik í Evrópudeildinni á síðustu leiktíð. Staðan var jöfn eftir 90 mínútur í seinni leiknum og framlengja þurfti því leikinn.
Lyon náði 4-2 forystu í framlengingunni en Man Utd kom til baka og skoraði m.a. tvö mörk á lokamínútum leiksins til að tryggja sér sæti í undanúrslitum.
„Ég kunni ekki að meta það þegar Manchester United vann leikinn gegn Lyon því ég er Lyon maður. Nú bíð ég eftir leiknum til að rústa þeim. Ég er hérna til að vinna alla leiki," sagði Cherki.
Athugasemdir