Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
banner
   sun 15. júní 2025 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HM félagsliða í dag - PSG mætir Atletico
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
HM félagsliða hófst í nótt þar sem Inter Miami frá Bandaríkjunum gerðu markalaust jafntefli á heimavelli gegn Al-Ahly frá Egyptalandi.

Fjórir leikir eru á dagskrá í dag og nótt. Bayern mætir til leiks klukkan 16 þar sem liðið mætir Auckland City frá Nýja-Sjálandi. Það er síðan Evrópuslagur þar sem Meistaradeildarmeistararnir í PSG mæta Atletico Madrid.

Brasilíska liðið Palmeiras mætir síðan Porto frá Portúgal í kvöld. Það er einn leikur eftir miðnætti þar sem brasilíska Botafogo mætir Seattle Sounders frá Bandaríkjunum.

HM félagsliða
16:00 Bayern - Auckland City
19:00 PSG - Atletico Madrid
22:00 Palmeiras - Porto
02:00 Botafogo - Seattle Sounders

A-riðill: Palmeiras, FC Porto, Al Ahly, Inter Miami

B-riðill: Paris St-Germain, Atletico Madrid, Botafogo, Seattle Sounders

C-riðill: Bayern München, Auckland City, Boca Juniors, Benfica

D-riðill: Flamengo, Esperance Sportive de Tunisie, Chelsea, Los Angeles FC

E-riðill: River Plate, Urawa Red Diamonds, Monterrey, Inter Milan

F-riðill: Fluminense, Borussia Dortmund, Ulsan, Mamelodi Sundowns

G-riðill: Manchester City, Wydad, Al Ain, Juventus

H-riðill: Real Madrid, Al Hilal, Pachuca, Salzburg
Athugasemdir
banner