Jóhannes Karl Guðjónsson og lærisveinar hans í danska C-deildarliðinu AB unnu síðasta leik sinn í deildinni á tímabilinu er það lagði Næstved að velli, 1-0, í dag.
AB hefur verið á geggjuðu róli í deildinni í síðustu leikjum og var sigurinn í dag sá fimmti í röð.
Ægir Jarl Jónasson byrjaði hjá AB en Ágúst Eðvald Hlynsson var ekki með.
Ægir kom sér í nokkur góð færi í leiknum áður en honum var skipt af velli undir lok leiks.
Sigurmarkið kom tveimur mínútum síðar og tryggði AB 4. sæti deildarinnar með 51 stig.
AB tapaði ekki í síðustu átta leikjum sínum á lokasprettinum, þar af sex sigrar og tvö jafntefli. Frábær endir og klárlega eitthvað sem hægt verður að byggja ofan á fyrir næstu leiktíð.
Athugasemdir