Heimild: Fotbolltransfers
Birnir Snær Ingason, leikmaður Halmstad í Svíþjóð, er ekki sáttur með spiltíma sinn hjá liðinu.
Þessi 28 ára gamli sóknarmaður gekk til liðs ið Halmstad frá Víkingi í fyrra eftir að hafa verið besti leikmaður Bestu deildarinnar árið 2023.
Þessi 28 ára gamli sóknarmaður gekk til liðs ið Halmstad frá Víkingi í fyrra eftir að hafa verið besti leikmaður Bestu deildarinnar árið 2023.
Hann lék 26 leiki og skoraði fjögur mörk á sínu fyrsta tímabili í Svíþjóð í fyrra, þar af voru 16 leikir í byrjunarliðinu. Tímabilið í ár hefur hins vegar verið erfiðara.
Hann hefur aðeins komið við sögu í fimm af 12 leikjum liðsins og þar af eru aðeins tveir í byrjunarliðinu.
„Þetta er erfitt og fer í hausinn á manni. Maður verður að reyna halda áfram og halda einbeitingu og það eina sem ég hugsa um núna er að halda mér í formi ef ég skildi fá tækifæri. Við sjáum til hvað gerist í framtíðinni," sagði Birnir Snær í samtali við Hallandsposten.
Birnir Snær hefur verið orðaður við endurkomu í Víking og einnig Val. Þá er hann einnig orðaður við félög í Svíþjóð og Noregi.
„Ég er auðvitað óánægður með spiltímann svo við sjáum til hvað geerist en ég veit ekkert núna. Éeg vil auðvitað spila meira en ég geri núna," sagði Birnir Snær.
„Í hreinskilni sagt þá veit ég ekkert. Við sjáum til á félagaskiptamarkaðnum en núna er ég bara að einbeita mér að æfingum. Eins og ég sagði áður er ég óánægður með spiltímann," sagði Birnir Snær að lokum.
Athugasemdir