Tottenham að vinna kapphlaupið um Robertson - Neymar til Bandaríkjanna? - Rogers eftirsóttur
Óli Skúla: Það er vinna framundan
Sölvi Geir: Ég veit ekki hvaða rök það eru
Anton um mistökin: Gylfi sá sem maður hefði síst viljað senda á
Gylfi Sig: Í 99 skiptum af 100 fer þessi bolti langt yfir mig
Nýliðinn Linda Líf: Hann sendi á mig, ég svaraði, hann hringdi svo og lét mig vita
Sá skemmtilegasti spilar í Garðabæ - „Stjörnumenn megi alveg vera spenntir"
Yngsti aðalmarkvörðurinn í Bestu - „Erfiðir átta mánuðir"
Thelma Karen: Bjóst ekki við svona stóru hlutverki
Álitið - Hver verður skemmtilegastur í viðtölum?
Höskuldur hungraður: Ætlum að svara fyrir síðasta tímabil
Veit ekki hvort Blikarnir fari í rokk og ról
Óli Skúla: Erum með þrjá öfluga miðverði
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
„Svíafíflið þitt“ - Gæðastjórinn heldur rígnum lifandi
Hólmar Örn: Hefði engu máli skipt hvernig við hefðum æft
Guðrún sendir skýr skilaboð fyrir heimaleikina
Katla: Er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu
Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira
   sun 15. nóvember 2015 23:00
Elvar Geir Magnússon
Zilina í Slóvakíu
Raggi Sig: Menn eru smá feimnir í byrjun
LG
Borgun
Ragnar er lykilmaður í íslenska landsliðinu.
Ragnar er lykilmaður í íslenska landsliðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðvörðurinn Ragnar Sigurðsson segir að það hafi vissulega verið pirrandi að ganga af velli eftir leikinn gegn Póllandi þar sem Ísland fékk fjögur mörk á sig í seinni hálfleik og tapaði 4-2.

„Þegar maður skoðar mörkin var þetta töluverð heppni hjá pólska liðinu og einstaklingsmistök hjá okkur. Mér finnst 4-2 ekki gefa alveg rétta mynd af leiknum þó að við vorum vissulega ekki nægilega góðir og áttum ekki skilið meira úr þessum leik," segir Ragnar.

„Þegar við lentum undir vorum við að reyna of mikið og vorum of opnir. Þetta var ekki nægilega góður leikur í heildina séð. Það er mikilvægt að læra af mistökunum."

Á þriðjudag leikur íslenska liðið gegn Slóvakíu. Hvað þarf liðið að gera betur þar?

„Við þurfum að halda skipulaginu og hvernig við viljum spila. Menn þurfa að halda stöðunum sínum. Svo eru menn að fá tækifæri sem hafa lítið eða jafnvel ekkert spilað. Það verður gott fyrir þá og gaman að sjá þá spila," segir Ragnar en talsvert er um nýliða í hópnum.

„Menn eru alltaf smá feimnir í byrjun en þetta eru hæfileikaríkir gaurar," segir Ragnar um nýliðana en viðtalið er í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner