Arsenal mun fá samkeppni í sumar um markvörðinn Andre Onana sem leikur með Ajax.
Frá þessu greina enskir miðlar en Onana er á förum frá Ajax þar sem hann er í keppnisbanni þessa stundina.
Onana féll á lyfjaprófi í Hollandi en hann má spila fótbolta á ný í nóvember - það verður þó líklega ekki í Hollandi.
Goal.com greinir til að mynda frá því að lið í efri hluta ensku deildarinnar muni reyna við Onana sem og lið í Frakklandi.
Þessi 25 ára gamli leikmaður má fara frá Ajax í sumar ne hann verður samningslaus næsta sumar.
Onana er uppalinn hjá Barcelona og er landsliðsmarkvörður Kamerún.
Athugasemdir