Delap nálgast Man Utd - Rift við Laporte - Arsenal og Liverpool berjast um Huijsen
   mán 17. október 2022 23:20
Ívan Guðjón Baldursson
Brentford í samningsviðræður við Frank
Mynd: EPA

Stjórnendur Brentford eru gríðarlega ánægðir með vel unnin störf hjá danska þjálfaranum Thomas Frank og hafa ákveðið að hefja samningsviðræður við hann.


Frank tók við Brentford fyrir fjórum árum og kom félaginu upp í úrvalsdeildina í fyrsta sinn frá því að keppnin var stofnuð. 

Brentford vill ekki missa Frank frá sér enda hefur honum tekist að koma félaginu á góðan stall í ensku úrvalsdeildinni þrátt fyrir að hafa ekki haft úr sérlega miklum fjármunum að moða.

Hinn 49 ára gamli Frank hefur verið orðaður við stjórastarfið hjá Leicester City þar sem Brendan Rodgers virðist eiga í hættu á að missa starfið sitt. Stjórnendur Brentford ætla að bregðast við með að gefa Frank nýjan samning.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Liverpool 36 25 8 3 83 37 +46 83
2 Arsenal 36 18 14 4 66 33 +33 68
3 Newcastle 36 20 6 10 68 45 +23 66
4 Man City 36 19 8 9 67 43 +24 65
5 Chelsea 36 18 9 9 62 43 +19 63
6 Aston Villa 36 18 9 9 56 49 +7 63
7 Nott. Forest 36 18 8 10 56 44 +12 62
8 Brentford 36 16 7 13 63 53 +10 55
9 Brighton 36 14 13 9 59 56 +3 55
10 Bournemouth 36 14 11 11 55 43 +12 53
11 Fulham 36 14 9 13 51 50 +1 51
12 Crystal Palace 36 12 13 11 46 48 -2 49
13 Everton 36 9 15 12 39 44 -5 42
14 Wolves 36 12 5 19 51 64 -13 41
15 West Ham 36 10 10 16 42 59 -17 40
16 Man Utd 36 10 9 17 42 53 -11 39
17 Tottenham 36 11 5 20 63 59 +4 38
18 Ipswich Town 36 4 10 22 35 77 -42 22
19 Leicester 36 5 7 24 31 78 -47 22
20 Southampton 36 2 6 28 25 82 -57 12
Athugasemdir
banner