Delap nálgast Man Utd - Rift við Laporte - Arsenal og Liverpool berjast um Huijsen
   mán 17. október 2022 12:15
Elvar Geir Magnússon
Cooper: Það eru ekki eins margir leikir eftir og maður heldur
Mynd: EPA
Steve Cooper, stjóri Nottingham Forest, segir að tíminn fljúgi í ensku úrvalsdeildinni og vill sjá lið sitt bæta gengi sitt sem alla fyrst.

„Ég vil sjá breytingu fyrr en seinna. Staða okkar í deildinni og frammistaða er ekki ásættanleg. Við getum vel farið til Brighton, spilað vel og náð úrslitunum sem við þurfum," segir Cooper.

Brighton og Nottingham Forest eigast við annað kvöld.

„Ég vil sjá okkur spila betur en hlutirnir hafa heldur ekki verið að falla með okkur. Stigasöfnunin þarf að lagast sem allra fyrst til að við getum komið okkur frá fallsvæðinu."

„Þó tímabilið sé nýhafið þá flýgur tíminn og það er ekki eins mikið eftir og maður myndi halda."

Forest er í neðsta sæti ásamt Leicester, liðin eru með fimm stig hvort en stöðuna má sjá hér að neðan:

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Liverpool 36 25 8 3 83 37 +46 83
2 Arsenal 36 18 14 4 66 33 +33 68
3 Newcastle 36 20 6 10 68 45 +23 66
4 Man City 36 19 8 9 67 43 +24 65
5 Chelsea 36 18 9 9 62 43 +19 63
6 Aston Villa 36 18 9 9 56 49 +7 63
7 Nott. Forest 36 18 8 10 56 44 +12 62
8 Brentford 36 16 7 13 63 53 +10 55
9 Brighton 36 14 13 9 59 56 +3 55
10 Bournemouth 36 14 11 11 55 43 +12 53
11 Fulham 36 14 9 13 51 50 +1 51
12 Crystal Palace 36 12 13 11 46 48 -2 49
13 Everton 36 9 15 12 39 44 -5 42
14 Wolves 36 12 5 19 51 64 -13 41
15 West Ham 36 10 10 16 42 59 -17 40
16 Man Utd 36 10 9 17 42 53 -11 39
17 Tottenham 36 11 5 20 63 59 +4 38
18 Ipswich Town 36 4 10 22 35 77 -42 22
19 Leicester 36 5 7 24 31 78 -47 22
20 Southampton 36 2 6 28 25 82 -57 12
Athugasemdir
banner
banner