Klásúlan um riftunarákvæði í samningi Harry Kane hjá Bayern München er runnin út.
Frá þessu segir Uli Hoeness, heiðursforseti Bayern, í samtali við Bild í Þýskalandi.
Frá þessu segir Uli Hoeness, heiðursforseti Bayern, í samtali við Bild í Þýskalandi.
„Ég vil klárlega endursemja við Harry Kane," segir Hoeness en samningur enska landsliðsfyrirliðans gildir til sumarsins 2027.
Kane var með riftunarákvæði upp á 65 milljónir evra í samningi sínum sem var hægt að virkja í síðasta lag í janúar síðastliðnum. Ekkert félag ákvað að virkja það.
Pressan er því ekki eins mikil á Bayern en félagið vonast til að endursemja við Kane fljótlega.
Athugasemdir


