Harry Maguire var í haust orðaður við Al Ettifaq og Al Nassr í Sádi-Arabíu. Hann er með lausan samning hjá Manchester United í sumar en bæði félagið og hann vonast til þess að samkomulag um áframhaldandi samstarf náist á næstunni.
Maguire er orðaður við Al-Qadsiah í dag. Fyrrum þjálfarinn hans, Brendan Rodgers, er þjálfari liðsins.
Maguire er orðaður við Al-Qadsiah í dag. Fyrrum þjálfarinn hans, Brendan Rodgers, er þjálfari liðsins.
Þeir unnu saman hjá Leicester áður en Maguire var keyptur til United. Rodgers tók við í febrúar 2019 og nokkrum mánuðum síðar var Maguire seldur.
Maguire verður 33 ára í næsta mánuði. Hann var keyptur til United sumarið 2019 á yfir 75 milljónir punda sem er metfé fyrir varnarmann. Hann er byrjunarliðsmaður í liði United sem hefur fengið tíu stig út úr síðustu fjórum leikjum.
Hann var á Íslandi á dögunum og má sjá myndir af heimsóknum hans í hlekknum hér að ofan.
Athugasemdir


