Man Utd lækkar ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai - Toney gæti snúið aftur til Englands
   mið 18. febrúar 2026 07:15
Elvar Geir Magnússon
Lækka ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai
Powerade
Rashford er hjá Barcelona á láni frá Newcastle.
Rashford er hjá Barcelona á láni frá Newcastle.
Mynd: EPA
Ivan Toney.
Ivan Toney.
Mynd: EPA
Framtíð Rashford, viðræður við Szoboszlai og möguleg endurkoma Toney í enska boltann er meðal þess sem fjallað er um í Powerade slúðurpakka dagsins. BBC tók saman.

Manchester United hefur ekki í hyggju að lækka 26 milljóna punda verðmiðann á enska framherjanum Marcus Rashford (28) sem er á láni hjá Barcelona. (Mail)

Liverpool hefur engar áætlanir um að selja Dominik Szoboszlai (25) sem hefur verið orðaður við Real Madrid. Viðræður Liverpool við ungverska miðjumanninn um nýjan samning eru að þróast. (TeamTalk)

Þýski sóknarmaðurinn Nick Woltemade (24) er óánægður hjá Newcastle og væri til í að snúa aftur til Þýskalands. Hann hefur verið orðaður við Bayern München og endurkomu til Stuttgart. (Bild)

Enski sóknarmaðurinn Ivan Toney (29) hjá Al-Ahli heldur því opnu að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina, þó hann sé ánægður í Sádi-Arabíu. (Sky Sports)

Nicolas Jackson (24) og Chelsea munu skoða möguleika sína í sumar en ekki er búist við því að Bayern München nýti sér möguleika á því að kaupa senegalska sóknarmanninn í sumar, þegar lánssamningi hans lýkur. (Mail)

Sunderland mun reyna að kaupa nýjan sóknarmann í sumar í stað franska framherjans Wilson Isidor (25) sem vill yfirgefa félagið. (Football Insider)

Atletico Madrid vill fá argentínska sóknarmanninn Julian Alvarez (26) til að skrifa undir nýjan samning en hann vill helst fara til Barcelona. (Sport)

Tottenham, Crystal Palace og West Ham eru meðal félaga sem vilja fá þýska varnarmanninn Antonio Rudiger (32) frá Real Madrid í sumar. (Fichajes)

Brasilíski varnarmaðurinn Murillo (23) er ofarlega á óskalista Chelsea en verðmiði Liverpool er í kringum 70 milljónir punda. (Caught Offside)

Everton ætlar að hafna tilboðum í enska miðjumanninn Kiernan Dewsbury-Hall (27) í sumar en Tottenham hefur sýnt honum áhuga. (Footbalk Insider)
Athugasemdir
banner