Það hefjast þrír leikir samtímis í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar í kvöld og má sjá byrjunarliðin hér að neðan.
Inter, sem steinlá í úrslitaleik keppninnar í fyrra, tekur á móti Norðmönnunum í afar skemmtilegu liði Bodö/Glimt sem hefur verið að ná mögnuðum úrslitum á síðustu árum og sérstaklega að undanförnu.
Bodö/Glimt lagði til að mynda stórveldin Manchester City og Atlético Madrid að velli í síðustu tveimur umferðum deildarkeppninnar í janúar til að tryggja sér sæti í útsláttarkeppninni.
Bodö/Glimt hefur áður strítt ítölskum stórveldum í Evrópukeppnum en frægt er þegar liðið vann 6-1 gegn Roma í Sambandsdeildinni í október 2021 og sló svo Lazio úr leik í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar í fyrra.
Kasper Högh, fyrrum leikmaður Vals, er á sínum stað í fremstu víglínu hjá Bodö/Glimt ásamt hinum öfluga Jens Petter Hauge.
Cristian Chivu þjálfari Inter ætlar ekki að vanmeta norsku andstæðingana og mætir til leiks með sterkt byrjunarlið. Federico Dimarco og Piotr Zielinski eru einu liðtæku byrjunarliðsmennirnir sem fá hvíld, auk Marcus Thuram sem er þó í harðri baráttu við Pio Esposito um byrjunarliðssæti við hlið fyrirliðans Lautaro Martínez í fremstu víglínu.
Diego Simeone ætlar heldur ekki að vanmeta Club Brugge sem hefur náð afar góðum úrslitum í Evrópukeppnum á síðustu árum. Hann teflir fram sínu sterkasta byrjunarliði er Atlético Madrid kíkir í heimsókn til Belgíu.
Aleksandar Stankovic er á sínum stað í byrjunarliði Club Brugge ásamt mönnum á borð við Hans Vanaken, Christos Tzolis og Simon Mignolet.
Að lokum spilar gríska stórveldið Olympiakos heimaleik við Bayer Leverkusen og má finna áhugaverð nöfn í byrjunarliði Grikkjanna. Fyrrum úrvalsdeildarleikmaðurinn Daniel Podence er í sóknarlínunni ásamt Gelson Martins og Mehdi Taremi, sem lék síðast fyrir Inter og átti stoðsendingu í mögnuðum sigri á Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í fyrra.
Patrik Schick leiðir sóknarlínu Leverkusen með menn á borð við Jarell Quansah, Edmond Tapsoba, Álex Grimaldo og Ernest Poku með sér í byrjunarliðinu.
Inter: Sommer, Akanji, Acerbi, Bastoni, Darmian, Mkhitaryan, Barella, Sucic, Augusto, Esposito, L.Martinez
Varamenn: Bonny, Bovo, De Vrij, Di Gennaro, Dimarco, Diouf, Henrique, J.Martinez, Thuram, Zielinski
Bodo/Glimt: Haikin, Sjovold, Bjortuft, Gundersen, Bjorkan, Evjen, Berg, Fet, Blomberg, Hogh, Hauge
Varamenn: Aleesami, Auklend, Bassi, Helmersen, Klynge, Lund, Maatta, Mikkelsen, Nielsen, Riisnaes, Saltnes, Sjong
Club Brugge: Mignolet, Sabbe, Ordonez, Mechele, Seys, Onyedika, Stankovic, Vanaken, Tzolis, Diakhon, Tresoldi
Varamenn: Campbell, Jackers, Lemarechal, Meijer, Nilsson, Osuji, Reis, Siquet, Spileers, Vermant, Vetlesen
Atletico Madrid: Oblak, Molina, Pubill, Hancko, Ruggeri, Simeone, Koke, Llorente, Lookman, Alvarez, Griezmann
Varamenn: Almada, Baena, Cardoso, Esquivel, Gimenez, Lenglet, Le Normand, Mendoza, Musso, Sorloth, Vargas
Olympiakos: Tzolakis, Rodinel, Retsos, Pirola, Ortega, Mouzakitis, Hezze, Martins, Taremi, Podence, El Kaabi
Varamenn: Luiz, Biancone, Botis, Ciquinho, Clayton, Costinha, Garcia, Kalogeropoulos, Nascimento, Onyemaechi, Paschalakis, Scipioni
Leverkusen: Blaswich, Quansah, Andrich, Tapsoba, Vazquez, Palacios, Garcia, Grimaldo, Maza, Poku, Schick
Varamenn: Arthur, Bade, Culbreath, Fernandez, Hofmann, Kofane, Lomb, Oermann, Omlin, Tape, Terrier, Tillman
Athugasemdir




