Kick It Out, samtök sem berjast gegn mismunun og kynþáttafordómum innan fótboltans, gagnrýna harðlega ummæli Jose Mourinho, stjóra Benfica, í viðtölum eftir leikinn gegn Real Madrid í gær.
Vinicius Jr, leikmaður Real Madrid, sakar Gianluca Prestianni, leikmann Benfica, um kynþáttaníð í leiknum og segir hann hafa kallað sig apa.
Mourinho, sem er stjóri Benfica, gagnrýndi aðallega eftir leik hvernig Vinicius fagnaði markinu - dansinn sem hann tók við hornfánann - og ýjaði að því að hann hafi stuðlað að þeim viðbrögðum sem hann fékk.
„Ég sagði við Vini 'þú skoraðir ótrúlegt mark, af hverju fagnaðirðu svona?' Ég elska hann en ef þú skorar svona mark þá ættir þú að fagna með liðsfélögum þínum," sagði Mourinho.
Vinicius hefur oftar en einu sinni orðið fyrir kynþáttafordómum í spænska boltanum og Mourinho virtist svo vitna í það: „Þegar svona gerist á svo mörgum leikvöngum, alltaf það sama, þá er eitthvað að."

Kick It Out sendi frá sér yfirlýsingu þar sem segir:
„Þegar einhver tilkynnir um mismunun og fordóma er mikilvægt að það sé hlustað á hann og honum sýndur stuðningur. Að einbeita sér að fögnuði Vinicius Jr í stað þess að horfast í augu við aðalatriðið er gaslýsing," segir Kick It Out um ummæli Mourinho.
„Svona nálgun skaðar ekki bara þann sem varð fyrir þessu heldur sendir einnig röng skilaboð til fólks um allan heim sem hefur lent í svipaðri stöðu. Leiðtogar í fótboltanum gegna mikilvægu hlutverki í að setja viðmið og svona atvik kallar á ábyrgð."
UEFA hefur gefið út að málið sé til skoðunar og verið að fara yfir öll gögn og skýrslur eftir leikinn. Sambandið muni ekki tjá sig frekar að svo stöddu en Prestianni heldur fram sakleysi sínu.
Athugasemdir