Umspilið fyrir 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar hófst í gær og heldur áfram í kvöld.
Meistaraspáin er skemmtileg keppni sem er spiluð með fram útsláttarkeppninni. Sérfræðingar í ár eru Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar í Bestu deild kvenna, og Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur í sömu deild. Aðili frá Fótbolta.net spáir einnig í leikina. Spáð er um úrslit allra leikja í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrir hárréttar lokatölur fást þrjú stig en eitt stig ef rétt tákn er á leiknum.
Svona er spáin fyrir leiki kvöldsins:
Meistaraspáin er skemmtileg keppni sem er spiluð með fram útsláttarkeppninni. Sérfræðingar í ár eru Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar í Bestu deild kvenna, og Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur í sömu deild. Aðili frá Fótbolta.net spáir einnig í leikina. Spáð er um úrslit allra leikja í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrir hárréttar lokatölur fást þrjú stig en eitt stig ef rétt tákn er á leiknum.
Svona er spáin fyrir leiki kvöldsins:
Gylfi Tryggvason
Qarabag 1 - 2 Newcastle (17:45)
Enska vorið fer af stað með sigri Newcastle manna. Anthony Gordon heldur uppteknum hætti og skorar einungis utan ensku úrvalsdeildarinnar, enda verið lykilmaður í mínu ömurlega Fantasy liði það sem af er tímabils.
Bodö/Glimt 0 - 2 Inter (20:00)
Jújú, þetta hefur auðvitað verið algjör snilld hjá Bodö en sagan segir að Adam hafi ekki verið lengi í paradís. Leikmenn Bodö mæta einbeitingarlausir í leikinn eftir að hafa verið með hausinn pikkfastan í tvær vikur á einhverjum rosalegustu Vetrarólympíuleikum í manna minnum. Takk Gunni Birgis.
Club Brugge 0 - 1 Atletico Madrid (20:00)
Atletico Madrid búnir að vera frekar steiktir undanfarið. Þegar öllu er á botninn hvolft eru rósir samt enn þá rauðar og Diego Simeone er enn í svörtum fötum að græja 0-1 sigra eins og hann fái borgað fyrir það, sem er raunin.
Olympiakos 1-1 Bayer Leverkusen (20:00)
Held mér gæti ekki verið mikið meira sama um þennan leik. Jafntefli og hvorugt lið fer áfram úr þessu ömurlega einvígi.
Óskar Smári Haraldsson
Qarabag 0 - 2 Newcastle
Eddie Howe veit hvað það skiptir miklu máli fyrir stuðningsmennina að fara áfram. Joelinton er einn af mínum uppáhalds í ensku deildinni og hann setur hann 100%. Harvey litli Barnes setur svo einn screamer í leik sem verður mjög þægilegur fyrir Newcastle.
Bodö/Glimt 1 - 2 Inter
Það sem það svíður að spá Inter sigri hérna. Bodö gjörsamlega geggjaðir og þetta verður hörkuleikur. Inter eru á góðu skriði og hafa ekki tapað í mánuð og ég ætla að spá því að það haldi áfram. Jens Petter Hauge heldur áfram að heilla og skorar fyrir Bodö, en Lautaro og Barella skora fyrir Inter.
Club Brugge 0 - 4 Atletico Madrid
Eftir stórkostlegan 4-0 sigur gegn Barcelona þá voru Simeone og lærisveinar hans sæmilega settir á jörðina gegn Rayo Vallecano fyrir nokkrum dögum. Þeir mæta dýrvitlausir til Belgíu og klára þennan mjög þægilega. Alvarez verður í stuði og setur tvö mörk.
Olympiakos 2 - 2 Bayer Leverkusen
Þessi lið hafa nú þegar mæst í riðlakeppninni og höfðu Olympiakos betur 2-0. Ætla spá smá markaleik og rokk og ról fótbolta á Karaiskakis Stadium í Grikklandi. Taremi og fyrrum leikmaður Wolves Daniel Podence sjá um mörkin fyrir heimamenn. Leverkusen búnir að vera í ákveðnu basli í vetur en þeir fara sáttir heim eftir þessa viðureign. Patrick Schick og einn fallegasti vinstri fótur fótboltans í dag - Alex Grimaldo - sjá um mörkin fyrir Leverkusen. Olympiakos eru sirka einum Kevin Mirallas frá því að vinna þennan leik.
Fótbolti.net - Kári Snorrason
Qarabag 0 - 2 Newcastle
Ef það er eitthvað sem ég hef lært þá er það að aldrei vanmeta Asera. Engu að síður þá spái ég 0–2 útisigri Newcastle. Ætli Elanga sýni ekki hvers megnugur hann er og eigi stórleik.
Bodö/Glimt 1 - 3 Inter
Nú hættir þetta Noregsgrín. Þó að gervigrasið í Norður-Noregi sé eitt erfiðasta teppi heims þá taka Ítalarnir þetta. Chivu er búinn að drilla sína menn vel og Inter uppsker 3–1 sigur. Fyrir áhugamenn um falleg mörk þá setur Mkhitaryan eitt slíkt. Jens Petter Hauge setur eitt fyrir Bodö, enda er hann alltaf AC Milan maður í grunninn.
Club Brugge 0 - 0 Atletico Madrid
Diego Simeone í 7D skák - Pakkar Barcelona saman og tapar 3-0 á móti Rayo Vallecano þremur dögum síðar. Núna fer hann í það sem hann kann best og hann læsir. Alexander Sörloth verður með hausinn á Bodö og klúðrar nokkrum dauðafærum.
Olympiakos 3 - 2 Bayer Leverkusen
Stóri El Kaabi leikurinn. Hann skorar að minnsta kosti tvö mörk í kvöld, það eru hreinar línur. Ætli Gelson Martins poti ekki inn þriðja markinu fyrir þá grísku. Leverkusen verða með öll völd á vellinum en eins og svo oft áður þá gleyma menn hvað El Kaabi refsar og þar verður engin breyting á í kvöld.
Staðan í heildarkeppninni:
Fótbolti.net - 3
Gylfi Tryggva - 2
Óskar Smári - 2
Athugasemdir



