Man Utd lækkar ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai - Toney gæti snúið aftur til Englands
banner
   mið 18. febrúar 2026 16:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Hugurinn leitaði ekki heim - „Sýndi á Íslandi að hann er frábær þjálfari"
Gerði samning til 2028.
Gerði samning til 2028.
Mynd: Värnamo
FH-ingurinn er lykilmaður í U21 landsliðinu.
FH-ingurinn er lykilmaður í U21 landsliðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Túfa tók við Värnamo í lok síðasta árs.
Túfa tók við Värnamo í lok síðasta árs.
Mynd: Varnamo
Logi Hrafn Róbertsson var í vikunni keyptur til IFK Värnamo í Svíþjóð. Hann kemur til sænska 1. deildar liðsins frá Istra í Króatíu. Hann var í rúmt ár hjá Istra, samdi við félagið í lok árs 2024.

Hann var ekki í stóru hlutverki í liðinu og var orðaður við heimkomu í vetur. Logi var m.a. orðaður við Val sem hafði reynt að kaupa hann af FH áður en hann fór út í atvinnumennsku. Hann er nú mættur til Svíþjóðar og í lið þar sem Srdjan Tufegdzic - Túfa - er við stjórnvölinn. Túfa tók við Värnamo í lok síðasta árs eftir að hafa þjálfað Val í rúmt ár. Talað er um að Värnamo greiði 200 þúsund evrur fyrir Loga eða um 29 milljónir íslenskra króna.

Liðið féll úr sænsku úrvalsdeildinni í fyrra og er markmiðið að fara upp á næstu árum. Logi Hrafn ræddi við Fótbolta.net í dag.

,Ég er mjög ánægður að vera orðin leikmaður Värnamo. Þetta gerðist allt mjög hratt, ég vissi að þeir höfðu áhuga á mér en svo þegar þetta fór af stað fóru hlutirnir að rúlla og við kláruðum þetta á stuttum tíma," segir Logi Hrafn.

„Það voru einhver lið búin að kanna stöðuna á mér en ég var ekki beint að hugsa það að koma heim, langaði að halda áfram úti og sýna hvað í mér býr."

„Ég fann strax að það var mikill áhugi hjá Värnamo að ég kæmi sem heillaði mjög. Svo er þetta metnaðar fullur klúbbur og góður staður fyrir mig að halda áfram að þróast og taka næstu skref."


Hvernig var samtalið við Túfa?

„Túfa sýndi það á Íslandi að hann er frábær þjálfari. Hann hefur skýra sýn á það hvernig hann vill að liðið sitt spilar. Ég var mjög hrifinn af því sem hann sagði á fundinum sem við áttum og ég er viss um það að hann eigi eftir að gera góða hluti með liðið."

Hvert er markmiðið hjá Värnamo?

„Värnamo er klúbbur sem á að vera í efstu deild og mér finnst að við ættum að stefna þangað. Ég vil koma mér í byrjunarliðið og fara upp með liðinu," segir Logi Hrafn.
Athugasemdir
banner
banner