U19 ára lið ÍA, 2. flokkur, hefur spilað þrjá leiki síðustu þrjá daga í Danmörku og Svíþjóð. Margir mjög efnilegir leikmenn eru í liðinu og eiga þeir alls yfir 80 yngri landsleiki að baki.
ÍA vann 5-0 sigur á Nordsjælland á mánudag, tapaði 3-2 gegn AB í gær og vann 5-2 sigur á Helsingborg í dag.
ÍA vann 5-0 sigur á Nordsjælland á mánudag, tapaði 3-2 gegn AB í gær og vann 5-2 sigur á Helsingborg í dag.
Mörk ÍA gegn Nordsjælland skoruðu Gabríel Snær Gunnarsson, Rafael Máni Þrastarson, Jón Breki Guðmundsson, Daníel Michal Grzegorzsson og Grétar Jónatan Pálmason - en leikið var á Right To Dream aðalvelli FC Nordsjælland.
Skagastrákarnir unnu sigur á Helsingborg í dag en sænska liðið endaði í 7. sæti U19 deildarinnar í Svíþjóð í fyrra. Mörk ÍA í leiknum skoruðu Gabríel Snær Gunnarsson, Jón Þór Finnbogason, Jón Viktor Hauksson, Styrmir Jóhann Ellertsson og Grétar Jónatan Pálmason.
Í gær spilaði liði gegn unglingaliði Íslendingaliðsins AB. Lokatölur urðu 3-2 fyrir AB. Þeir Jón Þór Finnbogason og Gabríel Snær Gunnarsson skoruðu mörk bikarmeistaranna í leiknum. Gabríel skoraði því í öllum leikjunum.
Athugasemdir


