„Ég skil alveg þessa spá. Við höfum ekkert náð í voðalega góð úrslit á undirbúningstímabilinu en markmið okkar er að gera betur en í fyrra og við stefnum að því," sagði Kristrún Ýr Holm, fyrirliði Keflavíkur, eftir að spáin fyrir Bestu deildina var opinberuð í dag.
Á kynningarfundi fyrir Bestu deild kvenna var Keflavík spáð 9. sætinu en þá er liðinu spáð 10. sæti hér á Fótbolta.net.
Liðið hefur ekki sótt sér mikið af hagstæðum úrslitum á undirbúningstímabilinu og taldi hún því þessa spá eðlilega, en hópurinn er þó allur að koma til og er hún mjög bjartsýn á framhaldið.
„Já, mér finnst það. Við erum að koma saman meira núna, fá leikmenn inn og tékka okkur saman. Ég er bjartsýn."
Keflavík er búið að landa þremur erlendum leikmönnum og þá gætu fleiri verið á leiðinni.
„Ég tel þetta vera frábæra leikmenn og falla vel inn í hópinn. Flottir karakterar og góðar í fótbolta, hef fulla trú á þeim. Mér finnst líklegt að það séu fleiri að koma."
Fréttaritari Fótbolta.net spurði Kristrúnu aftur út markmið tímabilsins og var það að gera betur en í fyrra.
„Við ætlum að gera betur en í fyrra. Það er markmiðið. Klassískt svar," sagði Kristrún ennfremur en viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Sjá einnig:
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu kvenna: 10. sæti
Athugasemdir























