Daníela Dögg Guðnadóttir lagði upp sitt fyrsta mark í norsku úrvalsdeildinni er Álasund gerði 2-2 jafntefli við Stabæk í dag.
Daníela Dögg átti stóran þátt í velgengni Álasunds í B-deildinni á síðasta tímabili og á eftir að spila stóra rullu á þessari leiktíð.
Hún byrjaði í fyrstu umferðinni í 2-0 sigri á Vålerenga og síðan aftur gegn Stabæk í dag.
Daníela, sem lék með yngri flokkum Breiðabliks og venslafélagi þeirra, Augnabliki, lagði upp annað mark Álasunds í síðari hálfleiknum sem var fyrsta stoðsending hennar í efstu deild.
Mikilvægt var það en Álasund er með fjögur stig eftir tvær umferðir.
Sædís Rún Heiðarsdóttir byrjaði í 4-2 sigri Vålerenga á Haugesund og þá kom Arna Eiríksdóttir inn af bekknum í síðari hálfleik. Vålerenga er með 3 stig.
Sigdís Eva Bárðardóttir kom inn af bekknum hjá Norrköping sem tapaði fyrir AIK, 1-0, í fyrstu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar og þá kom Rebekka Sif Brynjarsdóttir inn á sem varamaður hjá Nordsjælland sem vann 3-1 sigur á AGF í dönsku úrvalsdeildinni, en Nordsjælland er í 3. sæti meistarariðilsins með 28 stig eftir 17 leiki.
Kristján Guðmundsson og stöllur hans í portúgalska úrvalsdeildarliðinu Damaiense náðu í stig annan leikinn í röð er þær gerðu 1-1 jafntefli við Vitoria Guimaraes.
Þetta er í fyrsta sinn á tímabilinu sem Damaiense nær í stig tvo leiki í röð. Greinilega farið að birta til eftir þunga byrjun á tímabilinu en Damaiense er í botnsætinu með 8 stig, þó aðeins þremur stigum frá öruggu sæti.
Athugasemdir

