Toppliðið vill Anderson - Erkifjendur á eftir leikmanni Real Madrid - Lewandowski og Greenwood til Juve?
   lau 28. mars 2026 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Óttar og Sigurður Bjartur í sigurliðum - Kristófer á skotskónum
Mynd: Triestina
Kristófer Jónsson skoraði fyrsta mark Triestina þegar liðið vann Virtus Verona 5-0 í A riðli ítölsku C-deildarinnar í dag.

23 stig hafa verið dregin af Triestina á tímabilinu vegna fjárhagsvandræða. Liðið er á botninum með níu stig eftir 34 umferðir en liðið á enn möguleika á að komast í umspil um að halda sæti sínu í deildinni.

Óttar Magnús Karlsson spilaði 76 mínútur þegar Renate vann Novara 3-1 í sama riðli. Renate er í 4. sæti með 56 stig.

Sigurður Bjartur Hallsson kom inn á sem varamaður þegar AD Merida vann Racing Club Ferrol í riðli eitt í spænsku C-deildinni. Merida er í 6. sætii meeð 44 stig eftir 30 umferðir.

Sandra María Jessen spilaði fyrri hálfleikinn í svekkjandi 2-1 tapi Köln gegn Frankfurt í þýsku deildinni en Köln var með forystuna í hálfleik. Köln er í 8. sæti með 28 stig eftir 22 umferðir.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner