Sean Dyche er ekki að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina, alla vega ekki í bili, en síðustu daga hefur hann verið orðaður við stjórastöðuna hjá Tottenham.
Dyche var rekinn frá Nottingham Forest í síðasta mánuði eftir slakt gengi en áður þjálfaði hann Burnley og Everton í úrvalsdeildinni.
Núna starfar hann sem spekingur hjá talkSPORT á meðan hann leitar sér að nýju þjálfarstarfi.
Tottenham er í miklum vandræðum og eru líkur á því að Igor Tudor verði látinn taka poka sinn á næstu vikum. Dyche hefur verið orðaður við félagið sem bráðabirgðastjóri út tímabilið, en hann hefur vísað þeim sögusögnum til föðurhúsanna.
Hann sagði frá skemmtilegri sögu varðandi þennan orðróm.
„Svona í alvörunni þá er það bara geggjað. Ég var á bar nálægt heimili mínu hér í Lundúnum og það kemur náungi upp að mér og spyr: 'Átt þú ekki að vera í viðræðum við Tottenham?'. Ég svaraði: 'Þannig er mál með vexti að ég sit hliðina á þér og er að fá mér einn Guinness, þannig ég tel það heldur ólíklegt',“ sagði Dyche og hló.
„Ég bætti síðan við: 'Nema þú sért að vinna fyrir Spurs og ert á Seven Stars-barnum að fá þér einn Guinness. Annars tel ég það heldur ólíklegt',“ sagði enski þjálfarinn.
Hann sagði síðan við manninn að hann væri ekki í neinum viðræðum við Tottenham og í augnablikinu væri hann starfandi hjá talkSPORT.
Roberto De Zerbi, fyrrum þjálfari Marseille, hefur einnig verið orðaður við Tottenham, en talið er að hann vilji bíða og sjá hvort liðið haldi sæti sínu í deildinni.
Athugasemdir



