Toppliðið vill Anderson - Erkifjendur á eftir leikmanni Real Madrid - Lewandowski og Greenwood til Juve?
   sun 29. mars 2026 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Klopp sló á létta strengi í endurkomunni á Anfield
Mynd: EPA
Jurgen Klopp sneri aftur á Anfield í gær en hann var hluti af þjálfarateymi Kenny Dalglish sem stýrði liði Liverpool í leik milli goðsagna félagsins og goðsagna Dortmund.

Leikurinn var haldinn til styrktar LFC Foundation.

Leikmenn á borð við Pepe Reina, Steven Gerrard, Sami Hyypia og Thiago tóku þátt í leiknum.

Leikurinn sjálfur endaði með 2-2 jafntefli en Thiago skoraði fyrra mark Liverpool eftir glæsilegt samspil við Ryan Babel og Jay Spearing skoraði með glæsilegu skoti fyrir utan teiginn.

Klopp sló á létta strengi á hliðarlínunni en það sást til hans halda uppi spjaldi sem á stóð 'Thiago, má ég fá sjálfu með þér?'.

Þá var einnig tilfinningaþrungin stund á 20. mínútu þegar leikurinn var stöðvaður til að heiðra minningu Diogo Jota.




Slapp
Athugasemdir
banner