Trafford áfram á óskalista Newcastle - Man City vill bjóða leikmenn í skiptum fyrir Tonali - Wharton til Real Madrid?
   sun 29. mars 2026 17:00
Brynjar Ingi Erluson
Skilur ekki gagnrýnina - „Hann er frábær þjálfari“
Liam Rosenior
Liam Rosenior
Mynd: EPA
Liam Rosenior, stjóri Chelsea, hefur fengið sinn skerf af gagnrýni fyrir leikskipulag og þjálfun á Lundúnaliðinu, en franski varnarmaðurinn Malo Gusto segist hafa fulla trú á Englendingnum.

Rosenior situr í heitu sæti hjá Chelsea eftir slakan árangur síðan hann tók við af Enzo Maresca.

Englendingurinn byrjaði á 5-1 stórsigri á Charlton í fyrsta leiknum og eru sigurleikirnir orðnir tíu í öllum keppnum, en liðið hefur tapað síðustu fjórum í röð.

Chesea er úr leik í Meistaradeildinni og er í hættu á að missa af Meistaradeildarsæti fyrir næstu leiktíð.

Eðlilega hefur framtíð Rosenior verið rædd í fjölmiðlum, en Gusto skilur ekki þá gagnrýni sem hann hefur fengið.

„Liam Rosenior er frábær þjálfari. Ég skil ekki af hverju fólk er að gagnrýna hann,“ sagði Gusto við ESPN.

„Hann kemur með margt fyrir framtíðina, en ef hann er stjóri Chelsea þá þýðir það að hann er með hæfileikana til þess. Við höfum trú á honum,“ sagði Gusto í lokin.
Slapp
Athugasemdir
banner