Það voru gleðitíðindi sem bárust til stuðningsmanna Aftureldingar fyrir tveimur vikum þegar Elmar Kári Enesson Cogic framlengdi samning sinn við Aftureldingu út tímabilið 2027.
Fyrri samningur hefði runnið út eftir komandi tímabil, en Elmar hefur verið lykilmaður í liði Mosfellinga síðustu ár. Fótbolti.net ræddi við Magnús Má Einarsson, þjálfara Aftureldingar, um leikmanninn.
Fyrri samningur hefði runnið út eftir komandi tímabil, en Elmar hefur verið lykilmaður í liði Mosfellinga síðustu ár. Fótbolti.net ræddi við Magnús Má Einarsson, þjálfara Aftureldingar, um leikmanninn.
„Elmar hefur tekið skref fram á við á hverju einasta ári hjá okkur í Mosfellsbænum. Frá því að hann byrjaði að spila með meistaraflokki 18 ára gamall hefur hann bætt sig á hverju einasta ári. Hann hefur farið frá því að koma ungur inn í liðið og í það að vera algjör lykilmaður. Það er gríðarlegt fagnaðarefni að hann hafi ákveðið að skrifa undir nýjan samning. Honum líður vel hérna og hann er algjör lykilmaður hjá okkur.
Það reyndi auðvitað á hann í fyrra, hann var mikið meiddur og lenti síðan í veikindum sem hann er búinn að stíga upp úr núna. Hann er á mjög góðum stað núna, spilaði frábærlega á móti Breiðabliki á Spáni í æfingaferðinni. Ég hlakka til að sjá hann í sumar, ég hef ekki trú á neinu öðru en að hann standi sig jafn vel og undanfarin ár hjá okkur.“
Vill sjá hann fara út
Skagamenn sýndu Elmari mikinn áhuga í vetur og lögðu fram tvö tilboð í leikmanninn en þeim var báðum hafnað. Maggi var spurður hvort hann hefði haft áhyggjur af því á einhverjum tímapunkti að Elmar væri á förum.
„Nei, ég veit að hann er með stórt Aftureldingarhjarta. Það getur vel verið að komi einhvern tímann sá dagur að hann fari frá félaginu en það þarf að vera réttur tímapunktur fyrir hann og okkur. Hann vill hjálpa okkur að koma liðinu aftur upp í Bestu deildina núna. Ég vona í framtíðinni að hann fari erlendis að spila.“
„Hann hefur klárlega getu í það og það væri gaman að sjá það raungerast. Það hefur verið áhugi á honum áður en það hefur ekki hentað Aftureldingu eða honum á þeim tímapunkti. Ég er ekki í nokkrum vafa um það að ef hann spilar á sinni getu í sumar verður áhuginn enn meiri og við metum stöðuna þá. Vonandi hjálpar hann okkur að koma okkur upp um deild og tekur slaginn áfram með okkur.“
Sama gildir um Bjart Bjarma
Þá var jafnframt greint frá áhuga nokkurra liða á miðjumanninum Bjarti Bjarma Barkarssyni. Njarðvík lagði fram tilboð í hann en ásamt því hafði FH, Þór og ÍA augastað á leikmanninum, samkvæmt heimildum Fótbolta.net.
„Ég held að leikmönnum líði vel hjá okkur. Þessir lykilmenn í liðinu eru langflestir áfram, þeir hafa trú á því sem við erum að gera. Það þurfa að vera mjög freistandi tilboð til að fara annað. Nei, ég hafði ekki áhyggjur á að Bjartur færi. Tilboðin þurfa að vera há ef við ætlum að virkilega að hlusta á þau.
Síðan þurfa leikmennirnir að hafa áhuga á að fara til viðkomandi félags. Ég segi það sama og með Elmar; ég vona að Bjartur muni spila erlendis í framtíðinni, að hann taki áfram skref fram á við eins og hann hefur gert frá því að hann kom til okkar frá Ólafsvík. Næsta skref hjá honum er að fara erlendis og spila þar.“
Athugasemdir


