Uli Hoeness, stjórnarmaður Bayern München í Þýskalandi, segir Harry Kane vera meira virði en sænska framherjann Alexander Isak sem fór til Liverpool frá Newcastle United síðasta haust.
Kane er markahæsti maður þýsku deildarinnar og raðað inn mörkum þar síðan hann kom til Bayern frá Tottenham árið 2023.
Englendingurinn gæti slegið markametið í þýsku deildinni á þessari leiktíð, en hann á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum og er óvíst hvort hann muni framlengja samning sinn.
Endurkoma í ensku úrvalsdeildina hefur verið rædd en Hoeness segir að Bayern ætti að biðja um 250 milljónir svona fyrst að Liverpool hafi keypt Isak á 150 milljónir evra.
„Það var örlítil áhætta að borga 100 milljónir evra fyrir Kane árið 2023, en hann hefur spilað ótrúlega vel á síðustu árum. Ef við horfum á verð miðað við frammistöðu þá myndi ég segja að hann sé 150 milljóna evra virði, en síðan sérðu Liverpool kaupa Alexander Isak á 150 milljónir evra. Ef hann er 150 milljóna evra virði þá er Kane 250 milljóna evra virði,“ sagði Hoeness við Kicker.
Kane, sem er 32 ára gamall, hefur skorað 133 mörk í 136 leikjum með Bayern á meðan Isak, sem gekk í raðir Liverpool frá Newcastle síðasta sumar, er aðeins með þrjú mörk í sextán leikjum með Liverpool og verið mikið frá vegna meiðsla.
Athugasemdir

